22.02.1930
Neðri deild: 34. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1178 í B-deild Alþingistíðinda. (881)
9. mál, flugmálasjóður Íslands
Pétur Ottesen:
Ég vil benda hv. þm. á það, að það er villandi að margfalda síldarframleiðsluna með 10 til þess að gera sér grein fyrir hæð skattsins. Það er nefnilega ekki nema af nokkrum hluta síldarinnar, sem greiða skal gjaldið. Eða hefir hv. þm. ekki tekið eftir ákvæðinu í 3. gr., sem lýtur að þessu?