28.01.1930
Neðri deild: 7. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í C-deild Alþingistíðinda. (904)

26. mál, hafnargerð á Sauðárkróki

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Á þinginu í fyrra fluttum við þm. Skagf. frv. shlj. þessu. Það fékk þá ágætar undirtektir í þessari hv. deild, hjá sjútvn., er lagði með því einróma, en dálítill ágreiningur varð um það, hversu mikill hundraðshluti kostnaðar skyldi lagður fram úr ríkissjóði.

Jafnvel þótt þetta mál væri hjá sjútvn. í fyrra, og þótt hún sé nú skipuð sömu mönnum og þá, þykir mér þó rétt að leggja til, að þessu máli verði vísað til sjútvn. að þessari umr. lokinni.