19.02.1930
Efri deild: 29. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (974)
5. mál, sveitabankar
Jón Þorláksson:
Ég vildi aðeins geta þess, áður en þetta frv. verður afgr. úr þessari hv. d., að í því eru ýms atriði, sem ég og margir samflokksmenn mínir erum alls ekki ánægðir með. Sérstaklega vil ég taka það fram, að þetta frv. heimilar að ýmsu leyti áhættusamari starfrækslu en atvinnurekstrarlánafrv. það, sem flutt var á þinginu í hitteðfyrra.
Í grg. tilsvarandi stjórnarfrv., sem flutt var hér í fyrra, stendur, að frv. okkar sjálfstæðismanna um atvinnurekstrarlán hafi verið sniðið eftir erlendum fyrirmyndum. Þessi fullyrðing er algerlega gripin úr lausu lofti. Frv. okkar var sniðið eftir innlendri fyrirmynd, sem þegar er fengin reynsla fyrir. Þetta vildi ég hér með leiðrétta.
Enda þótt frv. þetta sé ekki þannig úr garði gert, sem æskilegt væri, og þótt það kunni að verða misnotað til áhættustarfsemi og fjárglæfra, þá ber ég það traust til sveitamanna, að þeir noti sér ekki heimildir þessara laga til þess að láta leiðast út á fjárhagslega glapstigu. Sérstaklega tel ég, að gjalda beri varhuga við misnotkun heimildarinnar til víxillánastarfsemi, og er allt undir því komið, hversu hæfir menn veljast til forstöðu. Og í trausti þess, að þessara annmarka gæti ekki verulega í framkvæmdinni, þá mun ég greiða þessu frv. atkv. mitt úr deildinni.