10.03.1931
Efri deild: 20. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í C-deild Alþingistíðinda. (1055)

23. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég get verið stuttorður um þetta mál. Frv. um sama efni lá fyrir þessari deild í fyrra, og er nú borið fram svo að segja óbreytt eins og það var eftir 3. umr. hér í d. í fyrra. Frv. kom þá svo seint fram, að því vannst ekki tími til þess að fara til hv. Nd., en eftir þeim undirtektum, sem það fékk hér í d. í fyrra af hálfu allra flokka, þá er mjög sennilegt, að það nái afgreiðslu á þessu þingi, og verður að telja það vel farið. — Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta að sinni, en leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til hv. menntmn.