24.03.1931
Efri deild: 32. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í C-deild Alþingistíðinda. (1061)
23. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Hv. þm. Snæf. hefir máske ekki hugsað málið nægilega til að sjá, að það var einmitt rétt, sem ég sagði, að þetta frv. þokaði málinu áfram. Hér er ef til vill ekki tekið eins stórt stökk og hv. þm. vildi stiga. En segjum, að ekkert væri gert nú, og eftir 2–3 ár væri farið að batna í ári og menn vildu þá fara að byggja háskóla og hefðu peninga til þess. Þá væri það ekki alveg nóg, því að svona bygging þarf rækilegan undirbúning. Og ef hann verður ekki hafinn fyrr en rétt þegar á að fara að byggja, gætu auðveldlega orðið mörg misstigin spor. Ég skal nefna eitt, sem þegar er gert til undirbúnings, að nú hefir Reykjavíkurbær tekið svo vel í málið, að í stað þess, að fyrst var talað um, að hann léti litla lóð handa stúdentagarði og háskóla, hefir nú verið lofað, að bærinn láti stóra lóð og þýðingarmikla, sem nægir í margar aldir. Þetta sýnir, að ekki er ráð, nema í tíma sé tekið.
Jafnvel þó að hv. þm. Snæf. og flokksmenn hans felldu þetta mál nú, sem ég vona þó, að þeir geri ekki, mundi það fljótt verða tekið upp aftur og látið ganga fram.