25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í C-deild Alþingistíðinda. (1243)

173. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ennþá hefir þetta ekki verið gert upp, og ég hefi því ekki á reiðum höndum upplýsingar um það, hvort ríkissjóður tapi nokkru á þessum ábyrgðum eða ekki. Ég hygg, að það sé ekki fullrannsakað af bankans hálfu, en um það munu verða gefin svör á sínum tíma.