21.02.1931
Neðri deild: 6. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í C-deild Alþingistíðinda. (1270)

1. mál, fjárlög 1932

Magnús Jónsson:

Það er aðeins athugasemd um þingsköp, sem mig langar til að gera. Af því að ég sá, að ræðu hæstv. fjmrh. var útvarpað, þá vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort áframhaldsumr. um þetta mál verður einnig varpað út. Ég hafði hugsað mér að nota tækifærið, ef útvarpað er, til þess að lýsa fjármálaástandinu lítið eitt, eins og það kemur mér fyrir sjónir.