25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í C-deild Alþingistíðinda. (1295)

173. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Fjmrh. (Einar Árnason):

Það er út af fyrirspurn hv. þm. Vestm., að ég stend upp. Hann fór nokkuð inn á einstök atriði frv., en þar sem þetta er 1. umr. um málið, þá hefi ég ekki fundið ástæðu til að lýsa neinu yfir á þessu stigi málsins um það, hvernig ég eða stj. taki í einstök atriði þess. Ég er að sjálfsögðu fús til að ræða við þá n., sem fær málið, ef hún óskar þess, og gefa n. upp, hverja skoðun ég hefi á einstökum atriðum þessa frv.