25.03.1931
Neðri deild: 33. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1069 í C-deild Alþingistíðinda. (1298)

173. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég tel óviðeigandi við þessa umr. að gera grein fyrir, hvaða aðstöðu bankaráð Íslandsbanka hafði á sinni tíð, og þá einkum ég, sem var skyldur að eiga þar sæti sem formaður, enda yrði það alllöng saga um mín afskipti í því efni. Ég vil aðeins minna á það nú, að það endaði með því, að þær skýrslur, sem ég fékk frá bankastjórum Íslandsbanka, voru þannig, að ég var neyddur til að leita út fyrir stj. bankans til að afla mér nauðsynlegra upplýsinga um bankann.