13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1110 í C-deild Alþingistíðinda. (1467)
194. mál, þingmannakosning í Reykjavík
Sigurður Eggerz:
Ég ætla ekki að fara að blanda mér inn í þær pólitísku deilur, sem hér hafa farið fram um hríð. Það kemur dagur eftir þennan dag og á morgun munu gefast tækifæri til slíkra umr.
En af því að minnzt var á mitt kjördæmi, langaði mig að spyrja hæstv. forsrh., hvort það er satt, að flokkur hans hafi látið fara með lista um Dalina, þar sem menn áttu að skrifa undir drengskaparloforð upp á æru og samvizku um það, að kjósa ekki Sigurð Eggerz. Ef svo er, þá er hér um einkennilega aðferð að ræða, sem er lítt í samræmi við anda kosningarlaganna og sýnir Framsóknarfl. því með þessu að mikils muni við þurfa.