10.03.1931
Neðri deild: 20. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í C-deild Alþingistíðinda. (1514)

58. mál, útsvör

Einar Jónsson:

Ég vil ekki láta hjá líða að þakka hv. allshn. fyrir góða afgreiðslu, og þótt hún afgr. frv. ekki alveg í sama formi og það var lagt fyrir þingið, get ég vel sætt mig við það. Ég býst við, að hér fáist lögun á þeim vandkvæðum, sem orsökuðu, að farið var fram á þetta. Vona ég, að hv. d. taki málinu á greiðan hátt og góðan.