13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í C-deild Alþingistíðinda. (1528)

194. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

„En ef þeim fjölgar, stafar það af trausti til stj.“, vil ég bæta við setningu hv. þm.

Hv. þm. Dal. sagði, að fáir lygju um meira en helming. Hann kannast þá við að hafa jarmað sjö sinnum — því að ég nefndi 14 sinnum — út af andróðrinum gegn sér, og þó hann hafi ekki gert það oftar, stendur hann í því efni langtum framar en aðrir, sem við stjórnmál fást.