13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í C-deild Alþingistíðinda. (1560)
245. mál, stjórn vitamála og vitabyggingar
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Það mun ekki vera til þess ætlazt, að langar umr. fari fram um þetta mál að sinni, þar sem orðið er svo áliðið dags, en ég vil þó ekki láta undir höfuð leggjast að skýra nokkuð frá því, hvaða drög liggja til þess, að þetta mál er hér fram komið. Hv. sjútvn. þessarar deildar flutti á síðasta Alþingi þáltill. um það, að skipuð væri mþn. til þess að athuga vitamálin og gera tillögur um skipulag þeirra í framtíðinni. Eins og hv. þdm. mun reka minni til, náði þessi till. ekki að verða borin undir atkv., en hæstv. atvmrh. lofaði að taka hana til greina. Því næst útnefndi hann menn í þessa nefnd, og voru það þeir Th. Krabbe vitamálastjóri, Pálmi Loftsson útgerðarstjóri, Halldór K. Þorsteinsson og Þorsteinn Þorsteinsson skipstjórar og Kristján Bergsson forseti Fiskifélagsins. Þessi nefnd sat alllengi að störfum og sendi Stjórnarráðinu frv. um þessi mál, sem síðan voru endursend til hv. sjútvn. þessarar deildar. Hún tók frv. til athugunar og flutnings, þ. e. a. s., breytti því í ýmsum verulegum atriðum þar sem henni fannst ekki fært að fylgja tillögum vitamálanefndarinnar, en að öðru leyti er meginkjarni frv. vitamálanefndar í þessu frv. Með þessu er í fyrsta sinni gerð tilraun til þess að skapa grundvöll undir framtíðarskipulag vitamálanna hér á landi, líkt og í öðrum greinum ríkisframkvæmda, svo sem vegamálum. Það má vel vera, að ýmsum hv. þdm. líki ekki orðalag einstakra greina frv., og þess má geta, að einn hv. nm. í sjútvn. er ekki ánægður með orðalag 6. gr. frv. og hefir flutt brtt. á þskj. 275, sem lýtur að þessu.
Ég hefi svo í rauninni ekki meira um þetta að segja umfram það, sem segir í grg. frv., ég vil einungis leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr., en þar sem þetta er komið frá nefnd, ætti ekki að þurfa að vísa málinu í nefnd að lokinni þessari umr. Ég vil svo mega vænta þess, að hv. deild fallist á að vísa málinu til 2. umr.