01.04.1931
Neðri deild: 39. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í C-deild Alþingistíðinda. (1565)

246. mál, forðagæsla

Frsm. (Lárus Helgason):

Vegna þess að tíminn er svo naumur, þá mun ég ekki halda neina framsöguræðu að þessu sinni, en vil einungis leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr., að lokinni þessari umr. Málið er komið frá landbn., og fyrir hönd n. vil ég mælast til þess, að menn taki málinu vel og greiði götu þess.