28.03.1931
Neðri deild: 36. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í C-deild Alþingistíðinda. (1600)

62. mál, rekstrarlánafélög fyrir bátaútveg og smáiðju

Jóhann Jósefsson:

Eins og hæstv. forseta og hv. dm. er kunnugt, var útbýtt hér í d. þann 21. þ. m. nál. meiri hl. sjútvn. um frv. til laga um stofnun rekstrarlánafélaga fyrir bátaútgerð og smáiðju. Þetta frv. hefir nokkrum sinnum áður verið hér fyrir þinginu. Frv. flytur mikið nauðsynjamál fyrir bátaútveginn, og þar sem ekki er enn komið nál. frá minni hl., þykir mér ætla að fara að verða tvísýnt um, að það komi nægilega snemma, til þess að frv. fái afgreiðslu á þessu þingi. Vildi ég því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki frv. á dagskrá mjög bráðlega, svo sýnt verði, að það verði ekki of seint fyrir.