01.04.1931
Neðri deild: 39. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í C-deild Alþingistíðinda. (1619)

283. mál, virkjun Efra-Sogs

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil geta þess út af orðum hv. 1. þm. Árn., að ætti ég um þetta mál að fjalla, þá teldi ég stj. skylt að sjá um, að hagur þess héraðs, sem Sogið er i, yrði ekki fyrir borð borinn. Ég lýsi yfir því, að ég álít það óforsvaranlegt í frv., að hugsa ekki um, að hagsmuna Rangæinga og Árnesinga sé gætt í sambandi við þetta mál.