13.03.1931
Neðri deild: 23. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í C-deild Alþingistíðinda. (1957)
117. mál, útsvör
Flm. (Jón Ólafsson):
Við þm. Reykv. flytjum þetta frv. samkv. ósk bæjarstjórnarinnar hér. Hefir því nýlega verið slegið föstu með dómi hæstaréttar, að utanbæjarmenn, sem hér eiga fasteignir eða hús, sem þeir leigja út og hafa þannig miklar tekjur af, eru ekki gjaldskyldir til bæjarins. Hinsvegar eru þeir utanbæjarmenn, sem hér hafa lóðarafnot, útsvarsskyldir hér. Er hér um ósamræmi að ræða, og fer frv. fram á, að það sé leiðrétt.
Ég sé ekki ástæðu til að fara frekari orðum um svo einfalt mál, en vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til allshn., að lokinni þessari umr.