21.03.1931
Neðri deild: 30. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (199)

116. mál, heimild til að veita Jóni Þorleifi Jósefssyni vélstjórnarskírteini

Héðinn Valdimarsson:

Fyrirvari minn lýtur ekki að því, að ég hafi á móti því, að þessum manni séu veitt þessi réttindi, heldur tel ég það varhugavert, ef á að fara að ganga inn á þessa braut, og vildi ég því slá varnagla við því, að hér væri um nokkurt fordæmi að ræða, ef svo skyldi til takast, að síðar yrði, sótt um þetta sama.