20.02.1931
Neðri deild: 5. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

7. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Fjmrh. (Einar Árnason):

Ef frv. það til tolllaga, sem lagt var fyrir þessa hv. deild í gær, verður gert að lögum, þá er og nauðsynlegt, að þetta frv. nái líka samþykki þingsins.

Ég sé enga ástæðu til að ræða frv. þetta frekar. Vil aðeins leyfa mér að óska, að því, að umr. þessari lokinni, verði vísað til fjhn.