30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í C-deild Alþingistíðinda. (307)

123. mál, dragnótaveiðar

Forseti (JörB):

Út af ummælum hv. þm. Ísaf. vil ég geta þess, að það er ekki nema að litlu leyti á valdi forseta, hvað malunum miðar áfram. Það munu vera um 20 frv., sem enn eru ekki komin til 1. umr., og sum þeirra eru jafngömul þessu frv. En ég mun hvað þetta frv. snertir reyna að greiða gotu þess. En það er ekki nema að litlu leyti á mínu valdi. Það er mest undir hv. þm. sjálfum komið, hversu fljótt gengur með afgreiðslu málanna, að þeir tefji ekki fyrir framgangi þeirra með óþarfa málæði, eins og stundum á sér stað.