30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (312)

123. mál, dragnótaveiðar

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vildi gjarnan, að hægt yrði að afgreiða þetta mál og vísa því til n., áður en fundi verður slitið, og skal því láta mér nægja að vísa til grg., sem frv. fylgir, um ástæðurnar fyrir því, enda er þm. þetta mál kunnugt, því að um það voru miklar umr. á þinginu 1928, þegar þau l, voru sett, sem hér er farið fram á breytingar a. Ef hinsvegar verður ekki hægt að afgreiða málið umræðulaust á þessum fundi, áskil ég mér að sjálfsögðu rétt til frekari framsögu.