08.04.1931
Neðri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í B-deild Alþingistíðinda. (428)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Það er einsætt, og ætti ekki að þurfa að taka fram, að þeir hv. þdm., sem viðstaddir hafa verið atkvgr. og sinnt henni, þurfa ekki að taka til sin þær ávítur, sem fram hafa komið að gefnu tilefni. Vitaskuld er átt við þá hv. þm., sem ekki eru á fundinum og hafa ekki lögleg forföll.