08.04.1931
Neðri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (430)

Afgreiðsla þingmála

Jón Sigurðsson:

því hefir verið beint til hv. þdm., að þeir hafi sýnt alvöruleysi í þessu máli. Ég vil ekki við það kannast hvað mig snertir. Ég hefi greitt atkv. í þessu máli, að frátöldu einu einasta tilfelli, þar sem ég gerði fulla grein fyrir, hvers vegna ég greiddi ekki atkv. Ég tel það ósæmilegt að beina slíkum ásökunum til okkar, sem setið höfum fundinn, en ef ekki er átt við okkur, þá á það að koma skýrt fram í upphafi, til þess að fyrirbyggja misskilning.