26.02.1931
Neðri deild: 10. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (445)

11. mál, þjóðabandalagið

Forseti (JörB):

Hæstv. forsrh. gat þess, að vafasamt væri, hvort rétt væri að vísa málinu til utanríkismálanefndar samkv. þingsköpum, þótt það annars væri eðlilegast. Samkv. ákvæðum 16. gr. og 18. gr. þingskapanna hygg ég, að bezt fari á því, að vísa málinu til allshn. og hún leiti síðan álits og umsagnar utanríkismálan. um málið. Ég vil því bera það undir hv. deild að vísa málinu til allshn. með þeirri grg., sem ég nú hefi nefnt.