26.02.1931
Neðri deild: 10. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (454)

42. mál, lyfjaverslun

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil geta þess, að ráðherra sá, sem þetta mál heyrir undir, er nú veikur af influensu, og er því ekki hægt að svara fyrirspurn hv. þm. N.-Ísf. nú. Mér virðist að kostnaður þurfi ekki að verða mikill við þetta, en ef hv. þm. vill bíða eftir svari ráðherrans við þessari spurningu, má vísa málinu til nefndar eða fresta umr.