06.03.1931
Neðri deild: 17. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í D-deild Alþingistíðinda. (515)

86. mál, sala viðtækja og lækkun afnotagjalds

Gunnar Sigurðsson:

Ég mun síðar koma með sérstaka þáltill. eða brtt. við þessa í þá átt, að gjaldið lækki í öfugu hlutfalli við það, sem fjöldi útvarpsnotenda fer vaxandi, prósent eftir prósent. Á því græðir bæði ríkið og einstaklingarnir, þar sem notkunin breiðist örar út með því móti, og er það ekki lítils virði um slíkt menningarmál.