19.02.1931
Neðri deild: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (524)

4. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Einar Árnason):

Frv. til laga um tekjuskatt og eignarskatt lá fyrir síðasta Alþingi og var flutt af meiri hl. mþn. í skattamálum og samið og undirbúið af henni. Það frv. var samþ. Hér í þessari hv. d., en varð ekki útrætt í hv. Ed. Það frv., sem hér liggur fyrir, er shlj. frv. í fyrra, eins og það var afgr. frá þessari deild. Þess vegna tel ég ástæðulítið fyrir mig að fara að ræða þetta frv. í einstökum atriðum, enda er hv. d. málið svo kunnugt, að þess gerist ekki þörf að svo stöddu. Ég vil einungis leggja til, að málinu verði vísað til fjhn., að lokinni þessari umr.