18.03.1931
Neðri deild: 27. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í D-deild Alþingistíðinda. (537)

152. mál, sala og afnotagjald viðtækja

Flm. (Gunnar Sigurðsson) [óyfirl.]:

Ég er á sömu skoðun og hv. 1. þm. Reykv., að þýðingarlaust sé að ræða málið, ef deildin er ekki ályktunarfær. Og ég vil taka það fram, að ég er sammála hv. þm. um það, að till. þessi eigi heima í menntmn. En af því, að hinar tvær samhliða þáltill. eru þegar komnar í allshn., þá vil ég að sjálfsögðu leggja til, að þessari till. verði einnig vísað þangað.