26.03.1931
Neðri deild: 34. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í C-deild Alþingistíðinda. (762)
5. mál, verðtollur
Frsm. meiri hl. (Halldór Stefánsson):
Eins og hv. þd. hefir tekið eftir, hefir fjhn. ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þessa frv. Meiri hl. vill leggja til, að frv. verði samþ. með lítilsháttar brtt. Þessar brtt. snerta aðeins 8. gr. frv. og lúta að því að undanþiggja fleiri vörutegundir frá tolli. Eins og menn hafa tekið eftir, er meginhluti þeirra vara, sem taldar eru í 8. gr., ýmist brýnustu nauðsynjavörur, svo sem kornvörur, eða vörur, sem notaðar eru til framleiðslu. Sumar brtt. eru aðeins til þess að gera ákvæði 8. gr. frv. ótvíræðari og valda vitanlega ekki ágreiningi. T. d. er tekið fram, að telja skuli með aflvélum ósamsettar aflvélar og varahluta sömuleiðis frystivélar o. s. frv.
Brtt. þessar eru svo auðskildar, að ég álít, að það sé óþarfi að fara fleiri orðum um þær. Auk þess eru brtt. þannig framsettar, að hægt er að greiða atkv. um hin einstöku atriði þeirra hvert um sig, ef svo sýnist.
Þá skal ég taka það fram, að ef þessar brtt. ná samþykki, mun það valda nokkurri, lækkun á verðtollinum í heild. Hefi ég lauslega áætlað, að sú lækkun næmi 80–100 þús. kr. Stærsti liðurinn af þessari upphæð er vegna fiskumbúðanna, sem lagt er til í brtt., að verði undanþegnar verðtolli.
Minni hl. fjhn. ber einnig fram brtt. við frv., en ég mun geyma mér að ræða þær þar til minni hl. hefir fært fram sín rök. Bar sem fleiri brtt. liggja ekki fyrir við þetta frv., sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða meira um málið að svo stöddu.