23.02.1931
Neðri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (792)

18. mál, samgöngubætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Gunnar Sigurðsson [óyfirl.]:

Það er rétt, að það er stuttur tími þangað til fram yfir kosningar. Og ég hefi skilið hæstv. atvmrh. Þannig, að ef hann verði við völd áfram, þá ætli hann sér að halda málinu áfram eins og frv. gerir ráð fyrir. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en ég tek þau orð hæstv. atvmrh. í fullri alvoru, að ef stj. sitji áfram, þá muni hún beita sér fyrir þessu verki.