13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (832)
19. mál, nýr vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus
Frsm. (Magnús Torfason):
Ég get yfirleitt þakkað mönnum fyrir undirtektir þeirra. það er aðeins ein rödd í þessum sal, sem virðist ekki geta fellt sig við frv., og það er af þeirri ástæðu, að hv. þm. vill fara miklu lengra. En það er nú eins og gengur, að nauðsyn brýtur lög, og við, sem erum þarna næstir fyrir austan fjall, vitum, hvar skórinn kreppir að, og að nauðsynlegt er að gera eitthvað.
Ég hefi ekki ástæðu til þess að taka annað fram en það, að 3. brtt., um að leggja megi veginn sem beinasta leið yfir heiðina, gengur ekki út á nýjan veg. En ég vil láta það koma fram, að allir eru óánægðir með veginn eins og hann er nú og þýðir ekki að halda sér við hann.