30.03.1931
Neðri deild: 37. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í C-deild Alþingistíðinda. (887)

20. mál, búfjárrækt

Héðinn Valdimarsson:

Ég hefi hér fyrir framan mig upphæðina eins og gert er ráð fyrir henni næsta fjárhagstímabil. Ég játa, að samkv. þeirri áætlun vex hún ekki neitt gífurlega. En spurningin er, hversu mikið þetta muni vaxa á næstu árum, því vitanlega eiga login að gilda til frambúðar, og ráðh. sá, er flytur frv., hlýtur að hafa gert sér grein fyrir þeirri hlið málsins.