23.03.1931
Efri deild: 31. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í C-deild Alþingistíðinda. (963)

27. mál, kirkjur

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Þetta frv. hefir legið fyrir hv. Nd. og var þar samþ. með nokkrum breytingum. Ég þykist vita, að þessi hv. deild taki málinu vel. Ég vildi aðeins óska þess, að gerðar verði á frv. smábreytingar, og því helzt breytt í það horf, sem það var upphaflega. Sérstaklega á þetta við um ákvæðið um kirkjunefndir. Atkvgr. um það atriði var óglögg í Nd. og verður þessi hv. d. að fella annaðhvort ákvæðið úr frv., eða þá að breyta því í sitt upphaflega horf, sem ég vona, að verði gert. Að loknum umr. legg ég til að málinu verði vísað til hv. allshn.