14.08.1931
Neðri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (1169)

13. mál, milliþinganefnd um kjördæmaskipun

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég tel enga ástæðu til að ræða efnishlið þessa máls. Það hefir orðið samkomulag milli stóru flokkanna um skipun þessarar nefndar, og þá sé ég ekki ástæðu til að ræða málið frekar. Ég vildi leggja til, að till. verði vísað til síðari umr., en álít þarflaust að vísa henni til nefndar.