25.07.1931
Sameinað þing: 4. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (1212)

74. mál, gæsla hagsmuna Íslands út af Grænlandsmálum

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil aðeins í sambandi við ummæli hv. 1. landsk. viðvíkjandi því, að vísa málinu til n., lýsa því yfir, að ég mun stuðla að því eftir megni, að það verði afgr. sem fyrst. Og þar sem hv. 1. landsk. á einmitt sæti í þeirri nefnd, þá ætti ekki að þurfa að óttast, að málið dragist lengur en þörf er á.