18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í B-deild Alþingistíðinda. (1341)
113. mál, verkamannabústaðir
Jón Ólafsson:
Það er ekki ástæða til langra umr. frá minni hálfu um þetta mál, en ég vil endurtaka það, sem ég hefi áður sagt um þetta mál, að hér er verið að búa til sjóð, sem á að lána fé til vissra framkvæmda, sem eiga að verða til afnota fyrir vissan flokk manna, sem í þessum byggingarfélögum eru. Ég vil einnig minna á það, að framkvæmdirnar skv. þeim l., sem þegar eru gengin í gildi, eru ekki lengra komnar en það, að tekizt hefir að herja út 200 þús. kr. til bygginganna. Og þessi byggingarnefnd er nýbyrjuð að láta byggja fyrir þessa upphæð, og þegar þessum 200 þús. kr. er eytt, þá eiga að vera til 160 þús. kr. í byggingarsjóðnum, sem er tillag frá bænum og
ríkinu og upphaflega var ætlað til vaxtajafnaðar, en sem nú er orðið svo mikið, að hægt er að búa til úr því lánasjóð. Hér er um nýja leið að ræða, hvort þingið vill ganga inn á það að stofna til slíkra sjóða víðsvegar. Því búast má við því, að ef farið er að ganga nokkuð verulega inn á þessa braut, þá komi margir af borgurum landsins, sem jafnmikinn rétt þykjast hafa til slíks styrks, og heimti hið sama. Hinsvegar hefi ég talið rétt, að kaupstaðirnir fengju sömu fríðindi og sveitirnar hafa fengið með l. um byggingar- og landnámssjóð, eða að ríkissjóður veitti fé til þess að lækka hina háu vexti og gera kleift að lána féð aftur út með betri kjörum. Ef þessum grundvelli er kippt burt úr l., þá liggur ekkert beinna við en að byggingar- og landnámssjóður verði einnig að fara að lána einstökum mönnum fé út á 2. veðrétt, til þess að gera þeim færara en áður að rísa undir lánskjörum sjóðsins. Ég held því, að þetta mál sé á því stigi, að það eigi ekki að ná fram að ganga án frekari athugunar. Þar sem málið er ekki komið lengra en það, að búið er að koma inn fyrir landsteinana 200 þús. kr., en ekki er enn farið að byggja fyrir þær og engin framkvæmd liggur eftir, þá álít ég, að ekki sé rétt að bæta við þennan sjóð, a. m. k. ekki fyrr en notuð hefir verið sú fjárhæð, sem fengin er. Ég tel það allt of mikla fljótfærni.