22.08.1931
Sameinað þing: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í D-deild Alþingistíðinda. (1516)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Einar Arnórsson:

Ég skal játa það, að ég er ekki eins kunnugur hugarfari þm. á undanförnum þingum og hæstv. fjmrh., en ég minnist þess ekki, að mikill ágreiningur hafi orðið um afgreiðslu slíkrar till., fyrr en á þinginu í vetur. (Forsrh.: Hún var fyrst samþ. með eins atkv. mun í Nd.). Það hefir þá farið batnandi eftir það, og till. eflaust verið samþ. með tveggja atkv. mun eða meira árið eftir.