21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (1745)
78. mál, skeytaviðskipti forsætisráðherra og konungs út af þingrofinu
Fyrirspyrjandi (Héðinn Valdimarsson):
Um þær mundir síðastl. vor, þegar þingrofið var á ferðinni, fóru ýms skeyti á milli hæstv. forsrh. og konungs, og var margvíslegum getum að því leitt, hvert hefði verið efni þessara skeyta. Var farið fram á það af hálfu okkar jafnaðarmanna og Sjálfstæðisfl., að umboðsmenn flokkanna fengju að sjá þessi skeyti, en það fékkst ekki nema með ströngu skilyrði um þagnarheit. Tóku sjálfstæðismenn þessu boði, en við jafnarmenn ekki, og höfum við því ekki enn haft tækifæri til að fá að vita, hvað í þessum skeytum hefir staðið. Hefir verið mikið rætt um þessi skeyti, bæði í blöðum og á fundum, og talið, að þar hafi gætt ýmissa ekki óverulegra missagna af hálfu forsrh. Konungurinn hafi verið blekktur um það, hvernig ástandið hafi verið hér stjórnmálalega séð, og honum sagt rangt til um möguleika fyrir væntanlega stjórnarmyndun o. s. frv. Er nauðsynlegt, að hið sanna komi fram í þessu efni og að öll gögn verði lögð á borðið því viðvíkjandi, og höfum við jafnaðarmenn þess vegna borið fram þessa fyrirspurn. Við höfum og orðað fyrirspurnina svo, að ekki gæti neinn vafi á því leikið, að átt er við öll þau skeyti, sem hæstv. forsrh. kann að hafa sent konungi út af þingrofinu, hvort sem þau hafa verið send gegnum konungsritara eða á annan hátt. Hvort t. d. nokkur skilaboð hafa verið send til konungs fyrir milligöngu íslenzka sendiherrans í Kaupmannahöfn eða sendiherra Dana hér. Vænti ég, að hæstv. ráðh. gefi um þetta glögg og góð svör.
Ég vil svo að lokum láta þess getið hvað snertir skoðun okkar jafnaðarmenna á þingrofinu og því atferli, sem þar var framið, að við munum taka það mál fyrir sérstaklega, þegar stjórnarskrármálið verður til umr. á næsta þingi.