21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í D-deild Alþingistíðinda. (1748)

78. mál, skeytaviðskipti forsætisráðherra og konungs út af þingrofinu

Forsrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ummæli Erlings Friðjónssonar þurfa ekki að vera í ósamræmi við þessa yfirlýsingu. Ég símaði orðrétt ummæli hans út sama kvöldið og hann talaði við mig.