20.07.1931
Efri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (1781)

15. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Flm. (Jón Baldvinsson):

Þetta frv. hefir verið samþ. 5 eða 6 sinnum hér í Ed. Ég get því vísað til þeirra umr., sem fram hafa farið um málið undanfarin 5 eða 6 þing. Ég legg því til, að ekki verði hafðar langar umr. um það, en því vísað til allshn. til að athuga, hvort ekki hafi slæðzt inn í það prentvillur, og vona ég, að það verði samþ. hér í deildinni, svo að það verði eitt af því fáa, sem nær frsm að ganga á þessu þingi.