18.07.1931
Neðri deild: 4. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í C-deild Alþingistíðinda. (1925)

11. mál, vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus

Atvmrh. (Sigurður Kristinsson):

Þetta frv. var lagt fyrir Nd. á síðasta þingi og mun hafa komizt í gegnum 2. umr. Er það nú lagt fyrir þingið að nýju án nokkurra verulegra breytinga. Ég sé, að villa hefir slæðzt í fyrirsögn frv. Stendur þar ranglega „Mosfellssveit“. og ætti að laga það, er frv. verður prentað að nýju.

Ég leyfi mér að vísa til þeirra aths., er fylgdu frv. á síðasta þingi, og legg svo til, að málinu verði vísað til hv. samgmn. að lokinni þessari umr.