17.07.1931
Efri deild: 3. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (1930)

9. mál, brúargerðir

Atvmrh. (Sigurður Kristinsson):

Þetta frv. var lagt hér fyrir í deildinni á síðasta þingi. Var búið að afgreiða það frá d. og það sent til Nd. Í raun og veru mætti líta svo á, að ekki þyrfti að vísa því til nefndar, þar sem það er svo kunnugt flestum hv. þdm. En þar sem nokkrir nýir menn eru nú í d., tel ég það þó réttara, og geri ég það því að till. minni, að málinu sé vísað til samgmn., að lokinni þessari umr.