06.08.1931
Neðri deild: 22. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

1. mál, fjárlög 1932

Haraldur Guðmundsson:

Að fengnum þessum úrskurði forseta um að till. geti ekki komið undir atkv. eins og hún er orðuð, leyfi ég mér að taka aftur orðin í till.: „að því tilskildu, að“; vænti ég, að hæstv. forseti sýni það frjálslyndi að taka till. til greina með þeirri úrfellingu.