20.07.1931
Neðri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í C-deild Alþingistíðinda. (2054)
22. mál, Jöfnunarsjóður
Magnús Jónsson:
Ég vildi aðeins gefa stutta skýringu á því, hvers vegna ég lét í ljós efa um, að jöfnunarsjóður fengi sitt, því að hv. þm. Seyðf. sagðist ekki vita til þess, að stj. hefði ekki greitt lögboðin gjöld. Ég vil benda honum á það, að þessi greiðsla er annars eðlis en gjöld þau, sem ákveðin eru; hún kemur ekki til athugunar fyrr en búið er að gera upp ársreikninginn, og ef stj. virðir vilja Alþ. svo að vettugi sem fyrrv. stj. gerði, þá er enginn efi á því, að hún kæmist í þrot með greiðsluna.
Þetta ár hefði stj. t. d. átt að greiða 2¼ millj. kr., — en hvaðan hefði hún átt að taka féð til að greiða í sjóðinn?