20.07.1931
Neðri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í C-deild Alþingistíðinda. (2127)
29. mál, opinber vinna
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Hv. þm. hefir ekki lesið vel frv., eins og oft kemur fyrir. Í 3. gr. þess er gert ráð fyrir, að kaupgjaldið miðist við kauptaxta þess verkalýðsfélags, sem næst er, en hinsvegar vil ég geta þess í mótsögn við það, sem hv. þm. sagði, að ég held því fram, að verkafólkið eigi að ráða sínu kaupi, og enginn annar, á sama hátt og bændurnir ráða verði á afurðum sínum. Hinu ráða svo vinnu- og vörukaupendur, hvort þeir vilja láta vinna verkið eða kaupa vöruna.