24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (2301)

84. mál, myntlög

Ólafur Thors:

Við sjálfstæðismenn í fjhn. höfum ekki viljað gerast meðflm. að þessu frv. Við viljum hinsvegar samþykkja annað frv. um sama efni, sem bendir á aðra leið og borið hefir verið fram í Ed. Það frv. hefir áður verið lagt fyrir þessa hv. d., svo að ég sé ekki ástæðu til að gera það að umræðuefni nú, en geri ráð fyrir, að þessar tvær leiðir verði á sínum tíma bornar saman hér í deildinni.