24.07.1931
Neðri deild: 11. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (2302)
84. mál, myntlög
Magnús Jónsson:
Ég vil benda á, að samkv. 3. gr. frv. er ákveðið, að Alþingi afsali sér því valdi, er það hefir samkv. landsbankalögunum 1926 til að ákveða um, hvenær seðlar eru innleystir, í hendur fjmrh. Þetta kemur að vísu ekki aðalkjarna þessa máls við, en ég er ekki viss um, að rétt sé að fela fjmrh. þetta vald. Er þá fleira, sem til greina kemur, eins og það, hvernig gullforðinn eigi að vera. Eftir innlausnina verður að vera meiri gullforði hér heima. Ég tel rétt, að Alþ. hafi þetta vald áfram í sínum höndum og mun bera fram brtt. um það síðar.