21.07.1931
Efri deild: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (2367)

20. mál, framfærslulög

Jón Jónsson:

Þar sem mál þetta fer til n., sé ég ekki ástæðu til þess að það fari hér fram langar umr. Ég læt þess aðeins getið, að ég hefi ekki tekið sinnaskiptum í þessu máli eins og hv. 6. landsk. Ég finn enga ástæðu til þess að leiða þetta frv. í lög og ég vænti þess, að n. athugi það gaumgæfilega áður en hún samþ. það óbreytt.