17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í C-deild Alþingistíðinda. (2409)

38. mál, vegalög

Sveinbjörn Högnason:

Hæstv. forseti lét svo um mælt, að eins mætti vísa þessu máli til n., þó að þessari umr. væri nú lokið fyrst. Út af þessu vil ég láta þá ósk í ljós, að málinu verði þegar vísað til n., því að ég hygg, að það mundi hafa áhrif á atkv. þeirra þm., sem ekki vilja styðja að flaustursafgreiðslu á þessu máli eða öðrum, ef n. fær ekki að fjalla um svo þýðingarmikið mál áður. Mun ég fyrir mitt leyti greiða atkv. á móti frv., ef það fær ekki að ganga til nefndar.