20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í C-deild Alþingistíðinda. (2413)

38. mál, vegalög

Sveinn Ólafsson:

Ég vil leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál af dagskrá. Því var vísað til samgmn. fyrir 2 dögum. Á þessum stutta tíma hefir n. aðeins getað lokið við álitsgerð sína um það, en nál. er ekki útbýtt ennþá. Mér finnst tæplega eiga við að ræða frv. áður en nál. er komið í ljós, þar sem slíkt ágreiningsmál er á ferð sem þetta.